27. september 2008 klukkan 22:24
Halló öll sömul,
Jæja, núna næstu helgi er ég laus sem er c.a. eina lausa helgin sem að ég hef átt síðan ég hitti ykkur síðast.
Þar sem að ég á fáar lausar helgar þá langar mig að gera eitthvað alveg svaaaaakalega skemmtilegt þessa helgina og datt þá náttúrulega í hug þessi hópur :D
Hugmyndin er þá að bjóða ykkur heim til mín og það er ekki langt heiman frá mér og t.d. niður í bæ, en ef ykkur hugnast eitthvað annað, látið mig þá bara vita.
Þannig að, fáið ykkur barnapíur, ákveðið hvort kvöldið þið viljið hittast og látið mig vita.
Á föstudagskvöldið er meira að segja held ég eitthvað næntís kvöld á Nasa, sem væri eiginlega bara viðeigandi!!
Kær kveðja,
María Hrönn.
´82 árgangurinn
09. júlí 2008 klukkan 12:51
Kata er búin að eiga strákinn sinn, ótrúlega flottur. Innilega til hamingju Kata og fjölskylda.
´82 árgangurinn
05. maí 2008 klukkan 21:01
Rakel er farin til Ástralíu....set tengil á hennar síðu hér inn !
og ég er rosa sátt með áhugann á öðrum hitting en hvað vill liðið gera? :) ?
´82 árgangurinn
18. mars 2008 klukkan 17:09
Allavega hvort sem við verðum með annað reunion á þessu ári eða næsta þarnæsta eða hvað þá setti ég nýja könnun fyrir það....hin var eitthvað að renna út held ég...
Spurning hvort þið komið nú með fleirri síður til að setja inn, einhverjir fleirri með barnalandssíðu eða búnir að eiga eða bara venjulega bloggsíðu eða fyritækissíðu eða eitthvað??
Finnst freka gaman að grúska í þessum síðum og sjá hvað liðið er að brasa!
og ekki má nú gleyma myndum...væri bara gaman að fá nokkrar slíkar !! Ég verð að komast í skanna á alveg helling úr ML !! gamlar para myndir af hinum og þessum, ball myndir, vistarmyndir, leikhúsmyndir, bekkjarferðarmyndir....
Meltið þetta elskurnar
(og Kata...ég er bara nett móðguð yfir nó ríplæji á emailið

)
kv. Ragga
´82 árgangurinn
08. febrúar 2008 klukkan 22:03
Sæl öll, ég var að velta fyrir mér hvort það væri stemmning fyrir öðru bjórkvöldi.
Það var svo snilldargaman síðast og spurning hvort ekki sé möguleiki á endurtekningu og þá hugsanlega með fleiri meðlimum ;-)
kv. Hjördís
´82 árgangurinn
27. janúar 2008 klukkan 11:42
Vildi bara þakka skvísunum fyrir skemmtilegt kvöld :) Langt síðan maður skellti sér svona hressilega á djammið!
Verð nú samt að skamma þá sem ekki mættu, sérstaklega karlpeningur bekksins en enginn af þeim sá sér fært að mæta! Ekki flott frammistaða strákar ;)
Reyndar rákumst við á Adda sem var með okkur í 1. bekk í 2 vikur á pöbbarölti og komst hann næst því að halda uppi heiðri strákanna ;)
Ekki misskilja, alltaf gaman á stelpudjammi -væri alveg til í að svoleiðis yrði planað við tækifæri :)
En allavegana -takk fyrir kvöldið :)
kveðja
Eybjörg
p.s. Anna mín -þú ert auðvitað undanskilin (og Kalli) og lofuð fyrir frábært framtak með sms-sendinguna, hún barst víst mörgum sem ekki vissu af síðunni :)
´82 árgangurinn
21. janúar 2008 klukkan 14:39
Það kostar 30 þús á victor, innfalið 1 kútur af bjór ! Ég á ekki pening fyrir slíku og tek ekki áhættu á að fá til baka ef ég skildi leggja fram pening...

Þið verðið að koma með aðra hugmynd því annars bara fellur þetta niður

ég er alveg tóm...þetta er allt svona upphæð nema án kúts...svo endilega hjálpið mér nú !!
´82 árgangurinn
08. janúar 2008 klukkan 15:59
Hæ.
Ef
ÞÚ ætlar á
reunion kvittaðu þá hér undir í
komment
"
ÉG MÆTI"
Takk
´82 árgangurinn
18. nóvember 2007 klukkan 20:44
Í könnunni, hvort kemstu 25 eða 26 janúar á reunion ?
´82 árgangurinn
05. nóvember 2007 klukkan 19:56
verður í lok Janúar líklegast 25 eða 26 !!
nr. eitt : Kata eigum við að vera hjá þér og hafa eins og við vorum búin að vera að ræða, t.d hver kemur með eitthvað snarl og það verður bara "hlaðborð" á meðan að partýið er og þeir koma sem vilja, með börn eða áfengi bæði eða hvorugt eða...
nr. tvö: eigum við að vera niðrí bæ á einhverjum skemmtistað kannski hafa þá bollu eða bara versla á barnum og sleppa öllum mat ???
Persónulega væri ég að sjálfsögðu meira game í nr. eitt en ég get bara því miður ekki haft þetta heima hjá mér....
þ´+u??
´82 árgangurinn